Fundur með hagsmunaaðilum vegna Húnavöku

Undirbúningur fyrir Húnavökuna er nú kominn á fullt skrið. Boðað hefur verið til fundar með hagsmunaaðilum þar sem ræða á hvernig hægt er með sameiginlegu átaki að gera hátíðina enn betri.

Fundurinn verður haldinn í Eyvindarstofu annað kvöld, miðvikudagskvöldið 29. maí og hefst hann klukkan 20 og eru allir hvattir til að mæta. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir