Fundur um tollasamning á Hótel Borgarnesi

Bændur á Vesturlandi boða til fundar um nýgerðan samning við ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur.
Bændur á Vesturlandi boða til fundar um nýgerðan samning við ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur.

Bændur á Vesturlandi boða til fundar um nýgerðan samning við ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur á Hótel Borgarnesi þriðjudagskvöldið 29. september kl. 20:00.  Á fundinn mæta Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra landbúnaðarmála og Erna Bjarnadóttir landbúnaðarhagfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands.

Bændur eru hvattir til að mæta og nýta sér tækifærið til að koma á fund með landbúnaðarráðherra og eiga samtal við hann um framtíð íslensks landbúnaðar. 

„Það að sýna tómlæti í þessu máli er ávísun á að aðrir en við bændur taki ákvörðun um framtíð landbúnaðar á Íslandi,“ segir á vef Landssambands kúabænda. 

Fleiri fréttir