Fyrirlestrar í Kvennaskólanum
Tveir fyrirlestrar verða haldnir þriðjudaginn 14. apríl nk. í Kvennaskólanum á Blönduósi. Sá fyrri hefst kl. 16 en þar mun Þór Jakobsson fjalla um Sigurð Jónasson frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal.
„Sigurður þýddi Kúgun kvenna eftir John Stuart Mills sem reyndist verða grundvallarit í sögu kvenréttindabaráttu í heiminum,“ segir um fyrirlesturinn á Húna.is en hann er haldinn í tilefni af farandsýningu um kvenréttindabaráttu sem staðsett er á Blönduósi í apríl.
Seinni fyrirlesturinn hefst kl. 20 en þá mun Jónína Herdís Ólafsdóttir, meistaranemi við Háskólanum á Hólum og styrkhafi frá National Geographic Society, fjalla um veðurfarsbreytingar.
Þar mun m.a. koma fram að veðurfarsbreytingar munu verða 10 sinnum hraðari á næstu öld en á síðustu 65 milljónum ára áður. Hlýnun jarðar mun m.a. valda auknu strandrofi, bráðnun jökla og breytingu úrkomumynsturs. Jónína mun fjalla um hvernig þessar breytingar munu hafa áhrif á Ísland.