Fyrirlestur um heilun á kaffihúsinu Bjarmanesi
Kristján Viðar Haraldsson mun halda fyrirlestur á Bjarmanesi í kvöld, föstudaginn 28. október. Fyrirlesturinn fjallar um uppbyggingu orkukerfis mannsins og hvernig við getum haft áhrif á það á meðvitaðan hátt.
Fram kemur á vefmiðlinum huni.is að Kristján sé með diploma og bachelor gráðu í Brennan heilunartækni frá Barbara Brennan school of Healing, sem er einn elsti og virtasti heilunarskóli heims. Einnig er hann með BA-gráðu í sálfræði frá HÍ og margra ára reynslu sem ráðgjafi og íþróttaþjálfari.
Á fyrirlestrinum í kvöld mun Kristján varpa ljósi fjölmarga þætti um þetta áhugaverða viðfangsefni, m.a.:
- • Leitar þú að jafnvægi, andlegu og/eða líkamlegu?
• Ertu að lenda í sömu vandamálunum aftur og aftur?
• Ef svarið er já, þá getur heilun hugsanlega gert eitthvað fyrir þig?
• Hver eru tengslin milli sálrænna, líkamlegra og orkulegra þátta og hvernig getur sú þekking hjálpað þér til að líða betur?
• Gerðar verða æfingar sem hjálpa þér að komast í betra samband við þitt eigið orkukerfi.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20 og er aðgangseyrir er 1000 kr. Kristján mun einnig taka fólk í heilun í Hjallholti á föstudeginum, laugardeginum og fyrri hluta sunnudags ef áhugi ef fyrir hendi. Tímapantanir eru hjá Sigrúnu Birgisdóttur, s: 861-8120.