Fyrirspurn um átak í Austur-Húnavatnssýslu

Hörður Ríkharðssonar situr nú á þingi sem varamaður fyrir Guðbjart Hannesson.
Hörður Ríkharðssonar situr nú á þingi sem varamaður fyrir Guðbjart Hannesson.

Blönduósingurinn Hörður Ríkharðsson, annar varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um atvinnuuppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu.

Þar spyr hann um hvað líði framkvæmd ályktunar Alþingis um átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu til atvinnuuppbyggingar á svæðinu varðandi eflingu atvinnulífs, sköpun nýrra starfa og nýtingu raforku úr Blönduvirkjun.

Hörður tók sæti á Alþingi 23. september síðastliðinn í forföllum Guðbjarts Hannessonar, þingmanns Samfylkingarinnar.

Fleiri fréttir