Fyrrverandi slökkviliðsstjóri kærður vegna meintra brota í starfi

 RUV,is segir frá því að Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu hafa kært fyrrverandi slökkviliðsstjóra svæðisins vegna meintra brota í starfi. Starfslokasamningur hefur verið gerður við slökkviliðsstjórann en hann telur sig eiga inni laun hjá sveitarfélaginu.

Samningi við slökkviliðsstjórann var rift eftir að upp komst að hann hafði notað eldsneytiskort Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu í eigin þágu. Málið var kært til Lögreglunnar á Blönduósi þar sem það er nú í rannsókn.

En fleira ber á milli. Gerður var starfslokasamningur við slökkviliðsstjórann í maí þegar upp komst um misferlið. Slökkviliðsstjórinn hafði tekið út brunavarnir á sveitabæjum í sýslunni en eftir að starfssamningi við hann var rift neitaði hann að láta af hendi vinnuskýrslurnar.

Lögfræðingur mannsins hefur nú tilkynnt stjórninni að slökkviliðsstjórinn fyrrverandi hafi engin gögn undir höndum en sé hins vegar tilbúinn að koma til móts við stjórnina og vinna skýrslurnar, borgi sveitarfélagið honum vangoldin laun sem hann telur sig eiga inni hjá þeim.

Fleiri fréttir