Fyrsti fundur Prjónagraffara 2016

Þær Erna Björg Jónmundsdóttir og Magdalena Berglind Björnsdóttir eru driffjaðrirnar í þessu prjónagraffverkefni svokölluðu. Mynd/BÞ
Þær Erna Björg Jónmundsdóttir og Magdalena Berglind Björnsdóttir eru driffjaðrirnar í þessu prjónagraffverkefni svokölluðu. Mynd/BÞ

Fyrsti fundur ársins hjá svokölluðum Prjónagröffurnum á Blönduósi verður í dag, mánudaginn 22. febrúar, í Félagsheimilinu á Blönduósi. Fundurinn hefst kl. 20:00. „Spjöllum saman um spennandi tíma framundan - handverksmarkað, prjónahátíð og að sjálfsögðu prjónagraffið okkar,“ segir í tilkynningu á húna.is.  

Framtak Prjónagraffararana vakti verðskuldaða athygli sl. sumar þegar félagsskapurinn ákvað að skreyta Blönduósbæ fyrir Landsmót UMFÍ 50+. 

„Allir áhugasamir eru hvattir til að koma og endilega látið vini vita til að enginn missi af,“ segir í tilkynningunni. 

Fleiri fréttir