Fyrsti laxinn úr Blöndu kominn á land

Laxveiðitímabilið er hafið í Blöndu og voru fyrstu veiðimenn sumarsins mættir á bakka Blöndu upp úr klukkan sjö í morgun. Fyrsti laxinn kom á land klukkan 07:49 og var það veiðimaðurinn Sigurður Ásbjörn Pétursson sem veiddi hann á Breiðunni.

Laxinn úr Blöndu kom á land um klukkan hálf átta í morgun Um var að ræða fallega hrygnu sem mældist 79 sentímetrar á lengd, lúsug og nýgengin. „Fyrir utan þennan sem er þegar kominn á land í Blöndu er nokkuð líf, að sögn veiðimanna, á Breiðunni þar sem laxar eru að sýna sig svo áin á klárlega eftir að gefa meira þegar líður á daginn,“ segir í frétt á Vísi.is.

„Það er klárt mál að þessar góðu fréttir af opnunum beggja ánna gefa góða von að sumarið verði langt frá því sem það var í fyrra en raunverulega verður ekki hægt að sjá það fyrr en lengra líður inní tímabilið en við vonum að það stefni í gott veiðiár. Íslenskir veiðimenn eiga það svo sannarlega inni,“ segir ennfremur á Vísi.is.

Fleiri fréttir