Fyrstu Íslandsmeistaratitlar Júdófélagsins Pardusar
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
05.05.2014
kl. 13.45
Júdófélagið Pardus á Blönduósi sendi sjö iðkendur á Íslandsmót Júdósambands Íslands um helgina, sem haldið var í sal Júdódeildar Ármanns.
Keppendurnir frá Pardusi voru þeir Daníel Logi Heiðarsson, Eiríkur Þór Björnsson, Frímann Berg Hilmarsson, Gabríel Dagur Þórðarson, Leon Paul Suska, Sigursteinn V. Hjálmarsson og Viktor Már Heiðarsson.
Á Facebook síðu félagsins er sagt frá því að allir keppendur Pardusar stóðu sig mjög vel og glímdu af miklum metnaði. Bræðurnir Viktor og Daníel unnu gullið og eru því Íslandsmeistarar í sínum flokkum. Frímann, Gabríel og Leon unnu svo til bronsverðlauna í sínum flokkum.