Fyrstu niðurstöður íbúaþings
Íbúaþing var haldið á Skagaströnd fimmtudaginn 7. mars sl. en markmið þingsins var að fá fram viðhorf íbúa til til nokkurra grundvallaratriða. Jafnframt var markmiðið að auka aðgengi almennings að ákvarðanatöku í samfélaginu.
Á heimasíðu svf. Skagastrandar segir að á þinginu var unnið í hópum undir stjórn starfsmanna SSNV þar sem leitað var eftir hugmyndum og tillögum fundarmanna um málefni sem varða framtíðarsýn íbúa í atvinnumálum og almennri byggðaþróun sveitarfélagsins.
Á þinginu voru lagðar fram eftirfarandi spurningar sem unnið var úr í nokkrum hópum:
- Hvað gerir Skagaströnd aðlaðandi?
- Hvernig viljum við sjá Skagaströnd eftir 10 ár?
- Hver eru helstu atvinnutækifærin?
Undir styrkri stjórn starfsmanna SSNV, sem stýrðu hópunum, voru fyrrgreindar spurningar ræddar og bæði svör og hugmyndir tekin saman til frekari úrvinnslu. Hér má skoða samantekt fyrstu samantekt á því efni sem varð til á íbúaþinginu.
Áfram verður unnið með niðurstöður þingsins á vettvangi SSNV atvinnuþróunar og farið betur yfir flokkun og leitast við að samræma og einfalda niðurstöður. Að lokum er síðan gert ráð fyrir að niðurstöður verði teknar saman í skýrslu.