Gæðingur með nýja bjórlínu

Brugghúsið Gæðingur Öl er með nýja gerð af bjór í framleiðslu og mun hann koma í verslanir Vínbúðarinnar um næstu mánaðarmót.

Nýja bjórlínan kallast Pale Ale en þær tegundir sem Gæðingur hefur þegar í framleiðslu, við mjög góðar undirtektir, kallast Lager  og Stout.

„Pale Ale er humlað öl og mjög bragðmikið,“ sagði Jóhann Axel Guðmundsson starfsmaður brugghússins.

Gæðingur Öl mun einnig framleiða Jólabjór og mun hann koma í verslanir í lok nóvember.

Þeir sem vilja geta fest kaup á Gæðing í eftirfarandi verslunum Vínbúðarinnar:

  • Akureyri
  • Blönduósi
  • Eiðistorgi, Seltjarnarnesi
  • Hafnafirði
  • Heiðrúnu, Reykjavík
  • Kringlunni, Reykjavík
  • Sauðárkróki
  • Skútuvogi, Reykjavík
  • Smáralind, Kópavogi

 

Fleiri fréttir