Gæruhljómsveitir - Kontinuum
Kontinuum verður á meðal hljómsveita sem stíga á stokk á tónlistarhátíðinni Gærunni þann 15. til 17. ágúst nk.
Hvernig mynduð þið lýsa tónlistinni ykkar?
Við erum rokkhljómsveit. Við spilum indí slegið rokk málm suðu með trúarlegri sannfæringu. Rokk, dulúð, fegurð, draumar, reiði, hávaði og læti. Bara eins og lífið.
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?
Á síðustu tónleikum var einn hress sem grátbað okkur um að fá að dansa á sviðinu meðan við spiluðum, nakinn. Nekt hans hefði líklega ekki gert mikið fyrir okkur, áhorfendur eða orðspor hans, þannig við afþökkuðum, en hann grét hinsvegar alla tońleikana í fremstu röð. Alvöru. Vonandi grenjar einhver á Sauðárkróki líka, af réttum ástæðum.
Hvernig leggst það í ykkur að spila á Gærunni 2013?
Við hlökkum mikið til að spila. Við höfum bara heyrt góða hluti um hátíðina og finnst frábært að sjá hversu fjölbreytileg böndin eru. Tónlist á að vera landamæra- og fordómalaus, Gæran er það.
Hvað er á döfinni hjá þér/ykkur?
Við vorum að koma af Eistnaflugi. Gáfum nýverið út myndaband við lagið Moonshine, sem var snögglega bannað í birtingu á daginn í sjónvarpi. Erum að spila á festivali í Camden London síðar í sumar og svo Iceland Airwaves í haust.