Gæruhljómsveitir - The Royal Slaves
Hljómsveitin The Royal Slaves mun stíga á svið á tónlistarhátíðinni Gærunni í ár. Feykir mun birta stuttar kynningar á hljómsveitunum sem koma fram á Gærunni næstu daga.
Hvernig myndu þið lýsa tónlistinni ykkar?
Eins og nú er þá myndum við lýsa þessu sem klassísku rokki með dass af hinu og þessu.
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?
Kannski ekki beint skondið en Dagur spilaði einu sinni með gítarinn svo rammfalskann að hann hefði eins getað verið að spila á fiðlu, svo hefur Rikki einu sinni klárað lag með því að nota einungis einn kjuða.
Hvernig leggst það í ykkur að spila á Gærunni 2013?
Mjög vel, erum spenntir að fá að spila með öllum þessum tónlistarmönnum og að fá að vera partur af þessari hátíð.
Hvað er á döfinni hjá ykkur?
Núna er áætlunin að koma aftur inn af fullum krafti eftir sumarið þar sem við vorum allir á dreif um landið að vinna í sumar, upptökur og bar-gigg verða á dagskrá ásamt ýmsu fleiru, ætlum að æfa á fullu og semja sem mest.