Gæsin Blanda fékk gervihnattasendi

Ungmenni sem starfa við Blöndu aðstoðuðu við að smala gæsun til merkingar. Mynd: Róbert Daníel Jónsson.
Ungmenni sem starfa við Blöndu aðstoðuðu við að smala gæsun til merkingar. Mynd: Róbert Daníel Jónsson.

Sagt er frá því á vefnum Húnahorninu að alls hafi 113 gæsir verið merktar á Einarsnesi við Blöndu í gær. Þá hafi höfuðgæs Blönduósinga, grágæsin Blanda, fengið gervihnattasendi.

Arnór Þórir Sigfússon, gæsasérfræðingur, merkti gæsirnar en það var Jón Sigurðsson sem stóð fyrir því að gæsin Blanda fékk sendi og styrkti TM verkefnið. Gæsin er með merki á hálsinum með bókstafnum B og verður hægt fylgjast með ferðum hennar næstu tvö árin. Hinar 112 gæsirnar voru merktar með áberandi appelsínugulu merki um hálsinn.

Ungmenni sem starfa við Blönduvirkjun aðstoðuðu við að smala gæsunum saman til merkingar. „Krakkarnir í Blönduvirkjun stóðu sig frábærlega og má segja að dagur íslenska smalahundsins hafi verið í hávegum hafður í dag þó svo smalarnir hafi ekki verið með hringaða rófu,“ segir Jón Sigurðsson á Fésbókarsíðu sinni.

Síðast voru merktar gráæsir sumarið 2000 við sýsluskrifstofuna á Blönduósi en aðeins ein þeirra sést ennþá á Blönduósi með grænt fótamerki AVP en sú gæs er orðin 16 ára, segir á Fésbókarsíðu Róberts Daníels Jónssonar á Blönduósi.

Fleiri fréttir