Gaf Hólaneskirkju flygil

Á laugardaginn fyrir viku voru haldnir tónleikar í Hólaneskirkju þar sem fram komu stórtenórinn Kristján Jóhannsson, píanóleikarinn Jónas Þórir og fiðluleikarinn Matthías Stefánsson. Fluttu þeir margar gullfallegar íslenskar sem erlendar söngperlur fyrir fullu húsi áheyrenda.

Greint er frá því í Morgunblaðinu sl. fimmtudag að listamennirnir hafi farið á kostum fyrir fullu húsi áheyrenda, sem kunnu vel að meta það sem þeir höfðu fram að færa.

Tónleikarnir voru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli sem Lárus Ægir Guðmundsson stofnaði fyrir nokkrum árum til minningar um afa sína og ömmur sem bjuggu á Garði. Á tónleikunum bætti Lárus Ægir um betur er hann gaf Hólaneskirkju nýjan K.KAWAI-flygil til minningar um móður sína, Soffíu Lárusdóttur. Var það alnafna hennar, dóttir Lárusar Ægis, sem afhenti Steindóri Haraldssyni, safnaðarfulltrúa og meðhjálpara, gjafabréf vegna flygilsins. Nýi flygillinn lifnaði svo við í höndum Jónasar Þóris er hann spilaði „Adagio“ úr Tunglskinssónötu Beethovens.

Frá þessu er einnig sagt á vef Húnahornsins.

Fleiri fréttir