Gáfu gönguskilti

Í sumar var sett upp gönguskilti við bæinn Forsæludal í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu. Það var Þórdís Birna Lúthersdóttir, ásamt manni sínum og dóttur, sem gaf skiltið í tilefni af sjötugsafmæli föður síns, Lúthers Olgeirssonar, fyrr á þessu ári.

Þórdís útskrifaðist sem landfræðingur frá Háskóla Íslands í júní sl. og vann kortið út frá lokaverkefni sínu í áfanganum Landfræðileg upplýsingakerfi 2 og með gögnum frá Landmælingum Íslands.

Að sögn ábúenda í Forsæludal hefur lengi vantað skilti af þessu tagi, enda mikið um að göngufólk kæmi við í Forsæludal og til að spyrjast fyrir um Dalsfoss og fleiri fossa í Vatnsdalsá. Með tilkomu skiltisins, sem er bæði á ensku og íslensku, hefur fyrirspurnum göngufólks fækkað stórlega og fólk getur aflað sér þeirra upplýsingar sem það þarfnast með því að skoða skiltið.

Fleiri fréttir