Gáfu Húnavallaskóla endurskinsvesti og hjálma.
Björgunarfélagið Blanda afhenti á dögunum Húnavallaskóla endurskinsvesti til að nota í vettvangsferðum barna í 1. bekk. Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við Alcoa Fjarðarál, Dynjanda ehf, EFLA verkfræðistofu, Eflingu stéttarfélag, HB Granda, Isavia, Landsvirkun, Neyðarlínuna, Tryggingamiðstöðina, Umferðarstofu og Þekkingu, hafa síðustu vikurnar verið að gefa öllum skólum á landinu endurskinsvesti.
Þema verkefnisins er „Allir öruggir heim“ því öll eigum við rétt á að koma örugg heim og á það ekki síst við um þau sem eru að hefja skólagöngu sína.
Í byrjun maí gáfu fulltrúar Kiwanisklúbbsins Drangeyjar, þeir Gunnar Sigurðsson og Jóhannes Þórðarsson, nemendum 1. bekkjar í Húnavallaskóla hjálma til að nota á reiðhjólum, hlaupahjólum, línuskautum og hjólabrettum.
Yfir 20 þúsund börn hafa notið góðs af þessari gjöf. Húni.is segir frá þessu.