Gagnrýnir þau vinnubrögð sem viðhöfð eru við breytingar á stjórnarráði Íslands
Aðalfundur Landssambands veiðifélaga var haldinn á Húsavík dagana 8. – 9. júní 2012 og var hann óvenju vel sóttur, en hann sátu 44 fulltrúar veiðifélaga úr flestum landshlutum, auk gesta. Á fundinum fór fram stjórnarkjör og var Óðinn Sigþórsson í Einarsnesi einróma endurkjörinn formaður LV til næstu þriggja ára. Á aðalfundinum voru tekin fyrir ýmis mál sem snerta hagsmuni veiðiréttareigenda og um þau fjallað.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa flutti Guðni Guðbersson, sérfræðingur á Veiðimálastofnun, erindi um stöðu hrygningar og seiðaþéttleika í íslenskum laxveiðiám.
Fjölmargar ályktanir voru samþykktar m.a. þær sem hér eru hér fyrir neðan, um breytingar á stjórnarráði Íslands og sjókvíaeldi.
Stjórnarráð Íslands:
Aðalfundur Landsambands Veiðifélaga, haldinn á Húsavík dagana 8. – 9. júní 2012, gagnrýnir þau vinnubrögð sem viðhöfð eru við breytingar á stjórnarráði Íslands.
Engar upplýsingar liggja fyrir um hvar eða hvernig stjórnsýslu veiðimála og rannsóknum verður fyrir komið innan stjórnkerfisins eftir þær breytingar á stjórnarráðinu sem samþykktar hafa verið á Alþingi.
Fundurinn lýsir óánægju með að ekkert samráð er við hagsmunaaðila um þessar breytingar .
Fundurinn leggur til að stjórnsýsla og rannsóknir veiðimála og/eða Veiðimálastofnun verði undir hinu nýja atvinnuvegaráðuneyti.
Sjókvíaeldi:
Aðalfundur Landsambands Veiðifélaga, haldinn á Húsavík dagana 8. – 9. júní 2012, lýsir andstöðu sinni gegn því að veitt verði leyfi til sjókvíaeldis í Ísafjarðadjúpi á allt að 7000 tonnum á laxi af norskum uppruna, enda falla þar til sjávar gjöfulustu ár Vestfjarða.
Fundurinn telur ákvörðun Skipulagsstofnunar um að undanþiggja eldið mati á umhverfisáhrifum fráleita þar sem ekki er tekið tillit til þeirra óafturkræfu áhrifa sem eldið kann að hafa á laxastofna í nærliggjandi ám. Ennfremur áréttar fundurinn andstöðu sína við eldi á norskum laxi við strendur landsins.
Fundurinn minnir á að sjókvíaeldi á Íslandi er ekki atvinnugrein sem hægt er að byggja á og vísar til sögunnar í því sambandi.
Fundurinn telur ekki verjandi að leggja óspilltar náttúrauðlindir í íslenskum laxveiðiám að veði í þeirri tilraunastarfsemi sem nú er rekin áfram af laxeldismönnum af því óraunsæi sem sagan kennir. Þá leggur fundurinn áherslu á nauðsyn þess að mótuð verði heildarstefna fyrir sjókvíaeldi á þeim svæðum sem það er nú ekki bannað sbr. auglýsingu nr. 460/2004 þar sem þeirra sjónarmiða verði gætt að spilla ekki náttúrulegum laxastofnum.