Gámum í stað geymslu hafnað
Byggingarnefnd Blönduósbæjar hefur hafnað erindi húseiganda í bænum sem óskaði eftir því að fá að koma upp 20 feta geymslu gámi uppi á bílskúrsplötu lóðar sinnar en gáminn hugðist eigandinn nota sem geymslu.
Teikningar af íbúðarhúsinu sjálfu og bílageymslu voru samþykktar árið 1985 og var þá gert ráð fyrir bílskúr á umræddri bílskúrsplötu. Var erindi mannsins því hafnað og byggingarfulltrúa falið að leiðbeina honum um hvaða leiðir aðrar væru færar varðandi geymsluhúsnæði.