Gámur fauk af flutningabíl

Óveðrið sem geisar nú yfir landið hefur þegar valdið talsverðum usla en Vegagerðin varar enn við versnandi veðri um landið norðvestanvert næstu daga. Gámur fauk af flutningabíl á þjóðvegi eitt skammt frá afleggjaranum út á Hvammstanga síðdegis í gær en samkvæmt Rúv.is hafnaði hann utan vegar og engan sakaði.

Þá var Björgunarsveitin Húnar var kölluð til þegar þakplötur fóru að fjúka af húsi á Hvammstanga. Mjög hvasst var í Langadal en auk rútunnar sem fauk út af veginum um miðjan dag í gær hafnaði fólksbíll skömmu síðar ofan í skurði. Einn var fluttur á sjúkrahús úr rútuslysinu.

Næstu daga má gera ráð fyrir miklum vindi, snjókomu og skafrenningi og verður ferðaveður og færð því ákaflega slæm.

Fleiri fréttir