Garðar Thor Cortes með Heimismönnum á þrettándatónleikum
Æfingar fyrir þrettándagleði Heimismanna hafa verið í fullum gangi, og ágæt mynd að komast á flest lögin á dagskránni. „ Ekki veitir af, enda líður tíminn hratt og jól og áramót innan seilingar,“ segir á vef kórsins. Þrettándagleðin verður haldin í Menningarhúsinu Miðgarði laugardaginn 4. janúar og hefst klukkan 20:30.
Garðar Thor Cortes tenórsöngvari mun ganga til liðs við kórinn á tónleikunum en á dagskránni verða m.a. óperuaríur og sígild kórverk. Þá verður Bjarni Maronsson ræðumaður kvöldsins en eftir formlega dagskrá verður slegið upp balli þar sem Grétar Örvarsson leikur fyrir dansi.
Kórfélagar hafa látið útbúa miða í gjafaumbúðum sem þeir segja tilvalda í jólapakkann en forsala aðgöngumiða er í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki og KS í Varmahlíð.