Gasmengun yfir Norðurlandi í dag
Í dag, fimmtudag, má reikna með gasmengun norður og vestur af gosstöðvunum. Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands er búist við við gasmengun austur af gosstöðvunum á morgun, föstudag.
Á vefsíðu sóttvarnarlæknis segir að helstu áhrif gastegunda frá gosinu á heilsu manna eru af völdum SO2. Helstu einkennin eru ertingur í augum, hálsi og öndunarfærum og við háan styrk getur fólk fundið fyrir öndunarörðugleikum. Fólk með undirliggjandi astma, berkjubólgu, lungnaþembu og hjartasjúkdóma er viðkvæmara fyrir SO2, heldur en heilbrigðir einstaklingar og fær einkenni við lægri styrk en aðrir. Þeim er því ráðlagt að hafa öndunarfæralyf tiltæk.
Einnig segir að þótt ekki séu til áreiðanleg gögn um að börn séu sérstaklega viðkvæm fyrir SO2 er allur varinn bestur og skynsamlegt að ráðleggingar fyrir fólk með undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma gildi líka fyrir börnin.
Almenningur er því hvattur til að bregðast við ef gosmökkur kemur óvænt, halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu, ef þeir verða varir við óþægindi af völdum gosmökksins.
Nánari upplýsingar má finna á vef Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnunar og Sóttvarnarlæknis.