Gaukar þú mat að garðfuglum? Fuglatalning um helgina

Mynd: Þríeyki snjótittlinga með sýn í allar áttir. Ljósmynd: @Jóhann Óli Hilmarsson
Mynd: Þríeyki snjótittlinga með sýn í allar áttir. Ljósmynd: @Jóhann Óli Hilmarsson

Hin árvissa Garðfuglahelgi Fuglaverndar hefst á morgun 29. janúar og stendur til mánudagsins 1. febrúar en þá eru fuglavinir hvattir til að skrá fugla sem líta við í garðinn í eina klukkustund og senda Fuglavernd talningartölurnar. Velja má þann dag sem best hentar á þessu tiltekna tímabili. Í tilkynningu frá Fuglavernd segir að nú sé hart í ári hjá mörgum fuglum sem þreyja þorrann á landinu og eru fuglavinir hvattir til að gauka að þeim fóðri og fersku vatni reglulega.

Fyrir áhugasama býður Fuglavernd upp á streymisviðburð á Zoom í dag kl. 17 þar sem farið verður yfir framkvæmd talningar og skráningar. Finna má nánari upplýsingar um viðburðinn á  Facebook síðu Fuglaverndar  og á  vefsíðu Fuglaverndar. Einnig má finna þar gagnlegar upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra HÉR

Um Fuglavernd
Fuglavernd eru frjáls félagasamtök sem vinna að verndun fugla og búsvæða þeirra. Fuglavernd telur um 1300 félagsmenn. Fuglavernd er aðili að alþjóðlegu fuglaverndarsamtökunum BirdLife International sem á félaga í 120 löndum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir