Geðhjálp býður 30 skammta af G-vítamíni á þorranum
„Við þurfum öll að rækta og vernda geðheilsu okkar. Rétt eins og með líkamlega heilsu, þar sem öllum er ráðlagt að taka vítamín daglega, gerir margt smátt eitt stórt í geðrækt,“ segir í tilkynningu frá Geðhjálp sem býður því 30 skammta af G-vítamíni á þorranum; ráðleggingar sem er ætlað að bæta geðheilsu. Á næstu dögum mun dagatal með G-vítamínsskömmtum verða sent inn á hvert heimili á Íslandi en einnig verður hægt að nálgast dagatalið í völdum sundlaugum og verslunum um allt land.
„Markmiðið er að styrkja geðheilsu landsmanna en um leið að fyrirbyggja bresti og verja okkur í mótbyr. Með daglegri inntöku G-vítamíns myndum við sterkara ónæmi, því þessi einföldu ráð eru verndandi þættir geðheilsu.
Í hverjum glugga dagatalsins er einn skammtur og daglega birtast góð ráð á gvitamin.is, Facebook og Instagram. Fylgist endilega vel með þar, ekki síst á miðvikudögum þegar stærri G-vítamínskammtar verða birtir“ segir í tilkynningunni.
Fjöldi mergjaðra geðræktandi vinninga verða gefnir heppnum þátttakendum og það eina sem þú þarft að gera er að taka þátt og nýta þér G-vítamínið, sem er ókeypis og án aukaverkana!
Leiðbeiningar:
- Opnaðu gluggann á dagatalinu og taktu inn G-vítamínskammt dagsins
- Farðu á gvítamin.is
- Taktu þátt í leikjum og viðburðum eins og þér hentar á gvitamin.is, á Facebook og á Instagram
- Settu geðheilsu í forgang!
G-vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Sjá nánar á landlaeknir.is og hedinn.org/lifsordin14
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.