Gefa út góð ráð til foreldra á COVID-19 tímum

Mynd:stjornarradid.is
Mynd:stjornarradid.is

Félagsmálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og embætti landlæknis hafa tekið höndum saman við útgáfu góðra ráða til foreldra á tímum COVID-19 faraldursins. Eru ráðleggingarnar meðal annars unnar í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) og UNICEF.

Í frétt á vef stjórnarráðsins segir að á þessum tímum verði mikil röskun á daglegu lífi margra fjölskyldna þegar miklar takmarkanir eru á skóla- og frístundastarfi ásamt því að margir foreldrar vinni nú heima. Foreldrar séu í flóknu hlutverki við að samræma vinnu inni á heimili, nám barna og samveru með fjölskyldunni og á sama tíma glími margir við áhyggjur af heilsufari, efnahag og atvinnu,“

„Það er því brýnt að styðja við bakið á foreldrum og veita þeim stuðning og aðstoð. Þegar álagið er mikið er aukin hætta á því að samskipti innan fjölskyldunnar bíði hnekki og börn, sem voru í viðkvæmri stöðu fyrir, eiga enn frekar á hættu að verða fyrir ofbeldi eða vanrækslu. Markmið útgáfunnar er að ráðin verði foreldrum leiðarljós í því flókna hlutverki sem þeir standa nú frammi fyrir,“ segir á vef stjórnarráðsins en þar er að finna ráð til foreldra á 35 tungumálum fyrir utan íslensku.

Þá hefur félagsmálaráðuneytið einnig, í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og Rauða kross Íslands, sett af stað vitundarvakningu um barnavernd og velferð barna. Er þar annars vegar um að ræða myndband með ákalli til almenning um að láta vita ef áhyggjur vakna af velferð barns með því að hringja í barnanúmerið 112. Hins vegar er um að ræða myndband sem beint er að börnum og ungu fólki með hvatningu um að hafa samband við hjálparsímann 1717 eða netspjallið 1717.is ef þau þurfa á aðstoð eða hvers kyns stuðningi að halda.

Myndböndin má nálgast á Facebook síðu félagsmálaráðuneytisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir