Geirlaugsminni í kvöld
Í kvöld kl. 20.00 verður haldið á Sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki dagskrá um Geirlaug Magnússon skáld og kennara við FNV. Geirlaugur sem lést árið 2005 var afkastamikið skáld en gefnar voru út átján ljóðabækur eftir hann.
Dagskráin er eftirfarandi:
- Gísli Þór Ólafsson flytur lag
- Hver var Geirlaugur Magnússon? Jón Hjartarson fjallar um skáldið, vin sinn og félaga.
- Upplestur úr verkum Geirlaugs Magnússonar og tónlistarflutningur
- Hilmir Jóhannesson les ljóð eftir Geirlaug.
- Alfreð Guðmundsson (Alli Munda) les frumsamið ljóð um Geirlaug.
- Benedikt S. Lafleur minnist vináttunnar við skáldið síðustu ár þess.
- Gísli Þór Ólafsson flytur nokkur lög við ljóð Geirlaugs og fjallar um þau og rifjar upp kynni sín við skáldið.
- HLÉ - Kaffiveitingar
- Úrslit úr ljóðasamkeppni nemenda gerð kunn og ljóð lesin upp. Dómnefnd kynnir úrslitin og afhendir verðlaunin.
- Kvöldinu lýkur með lifandi myndum af Geirlaugi og tónlistarflutningi