Gengið í minningu Guðrúnar Teitsdóttur
Samkvæmt vef Húna mun Ljósugangan, í minningu Guðrúnar Teitsdóttur ljósmóður, fara fram dagana 4.-6. júlí næstkomandi. Guðrún útskrifaðist úr Ljósmæðraskólanum árið 1914 og á því 100 ára ljósmóðurafmæli í ár. Konur tengdar Guðrúnu og fjölskyldu hennar ætla að heiðra minningu hennar með því að ganga sömu leið og hún gekk eftir að hún lauk „Yfirsetukvennaskólanum“.
Guðrún gekk frá Borgarnesi að Grænumýrartungu, sem er fyrsti bær norðan Holtavörðuheiðar, en þangað var hún sótt á hesti. Áfangastaður var heimili hennar, Kringla í Austur-Húnavatnssýslu.
Öllum konum, ungum sem öldnum, er velkomið að ganga með. Hægt er að koma inn í gönguna hvenær sem er og ganga hluta úr leið – allt eftir því sem hverjum og einum hentar best. Hvert spor skiptir máli.
Áheit göngunnar munu renna óskipt til LÍF, styrktarfélags Kvennadeildar Landspítalans. Hægt er að leggja inn upphæð að eigin vali inn á eftirfarandi reikning og merkja innleggið Ljósuganga. Áheit verða notið til góðs í nafni Guðrúnar Teitsdóttur.
Bankanúmer 515-14-411000, kennitala 501209-1040.
Einnig er hægt að hringja í síma 907 1115 og styrkja verkefnið um 1.500 kr.
Hægt er að skrá sig í gönguna á netfangið ljosuganga@gmail.com.