GERÐU EITTHVAÐ MAGNAÐ!

Á morgun, laugardaginn 23. mars nk. kl. 14.00 munu sjálfboðaliða- og fræðslusamtökin AUS vera með kynningu fyrir ungmenni á sjálfboðaliðastarfi erlendis. Kynningin fer fram í Húsi frítímans en hér er kjörið tækifæri fyrir ungmenni á aldrinum 18-30 ára að kynna sér hvernig hægt er að láta gott af sér leiða og kynnast menningu og tungumáli annarra þjóða.

AUS eru frjáls félagasamtök rekin án hagnaðarsjónarmiða af heimkomnum sjálfboðaliðum. Samtökin hafa það að markmiði að senda ungmenni erlendis sem sjálfboðaliðar til að byggja brýr milli menningarheima, stuðla að víðsýni og virðingu og þroska einstaklinginn. Einnig sinna þau fjölmenningarfræðslu hér á landi.

Frekari upplýsingar um samtökin er hægt að finna á www.aus.is.

Fleiri fréttir