Gerir athugasemd við nafngift nýja stjórnmálaflokks Lilju Mósesdóttur
Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslum gerir athugasemd við nafnið Samstaða á flokki Lilju Mósesdóttur en Stéttarfélagið Samstaða er búið að vera til í 15 ár. „Þótt ekki sé um lögverndað heiti að ræða, þá hlýtur að vera hægt í svo myndauðugu máli sem íslenskan er að velja stjórnmálahreyfingu nafn, sem er ekki tekið frá starfandi félagasamtökum,“ segir á heimasíðu stéttarfélagsins samstada.is.
Heiti nýrrar stjórnmálahreyfingar Lilju Mósesdóttur hefur vakið nokkra athygli en hún nefnist sem kunnugt er Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar og hefur mbl.is fjallað um þessa umdeildu nafngift.
Nafnið Samstaða hefur verið vinsæll kostur í gegnum tíðina annað slagið orðið fyrir valinu. Fleiri dæmi má nefna, t.d. hefur verið bent á að stjórnmálasamtök hafi starfað á Patreksfirði frá árinu 1998 og boðið fram síðan þá í sveitarstjórnarkosningum á staðnum og átt fulltrúa í bæjarstjórn.
Stjórnmálasamtökin Samstaða þjóðar beittu sér á síðasta ári fyrir því að þriðja Icesave-samningnum yrði hafnað og önnur samtök, sem kallað hafa sig Samstaða Íslendinga, beittu sér fyrir mótmælum á Austurvelli á síðasta ári gegn stöðunni í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Ef farið er lengra aftur í tímann má síðan til að mynda nefna að stjórnmálasamtökin Samstaða um óháð Ísland starfandi 1991-2002 og beittu sér m.a. gegn því að Íslendingar gerðust aðilar að EES-samningnum og síðar Schengen-samstarfinu sem og Evrópusambandinu.