Geysispennandi gæðingafimi
Gæðingafimi KS deildarinnar í ár verður haldin annað kvöld, miðvikudagskvöld, í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og hefst keppnin kl. 20:00.
"Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í þessari grein í KS-Deildinni og verður mjög spennandi að sjá hvernig tiltekst. Sést hefur til nokkura liða á æfingum í Svaðastaðahöllinni og greinilegt að mikið er lagt undir," eins og segir í tilkynningu frá aðstandendum deildarinnar.
Liða- og einstaklingskeppni deildarinnar er orðin mjög jöfn og verður hart barist um þau stig sem í boði eru. Keppnin verður sýnd í beinni útstendingu á heimasíðu reiðhallarinnar svadastadir.is gegn vægu gjaldi. Við hvetjum alla til að mæta í höllina á miðvikudagskvöldið og sjá þessa fyrstu keppni í gæðingafimi í KS-Deildinni.
- Viðar Bragason – Lífland/Efri-Rauðalækur - Þytur frá Narfastöðum
- Anna K. Friðriksdóttir – Íbess-Gæðingur - Glaður frá Grund
- Gísli Gíslason – Draupnir/Þúfur -Trymbill frá Stóra-Ási
- Fanney D. Indriðadóttir - TopReiter -Brúney frá Grafarkoti
- Lilja Pálmadóttir – Hofstorfan/66°norður - Mói frá Hjaltastöðum
- Líney M. Hjálmarsdóttir – Hrímnir - Þytur frá Húsavík
- Guðmundur K Tryggvason - Lífland/Efri-Rauðalækur - Rósalín frá Efri Rauðalæk
- Teitur Árnason – TopReiter - Óskahringur frá Miðási
- Valdimar Bergsstað – Hrímnir - Hugleikur frá Galtanesi
- Mette Mannseth – Draupnir/Þúfur -Hnokki frá Þúfum
- Jóhann B. Magnússon – Íbess-Gæðingur - Embla frá Þóreyjarnúpi
- Bjarni Jónasson - Hofstorfan/66°norður - Dynur frá Dalsmynni
- Hallfríður Óladóttir – TopReiter - Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum
- Þórarinn Eymundsson – Hrímnir - Taktur frá Varmalæk
- Elvar Einarsson - Hofstorfan/66°norður - Gjöf frá Sjávarborg
- Baldvin A Guðlaugsson - Lífland/Efri-Rauðalækur - Öngull frá Efri Rauðalæk
- Hanna Rún Ingibergsdóttir – Íbess-Gæðingur -Nótt frá Sörlatungu
- Þorsteinn Björnssson – Draupnir/Þúfur - Króna frá Hólum