Gísli Gíslason og Trymbill sigruðu í gæðingafimi

Keppt var í gæðingafimi í KS-Deildinni í gærkvöldi. Gísli Gíslason og hinn gæðingurinn Trymbill frá Stóra-Ási stóðu uppi sem sigurvegarar eftir kvöldið. „Trymbill afsannaði þar með þá kenningu að alhliðahestur gæti ekki unnið þessa grein,“ segir á facebook-síðu KS-Deildarinnar.

Í öðru sæti varð Þorsteinn Björnsson og segir á facebook-síðunni að hann hafi átt magnaða sýningu í úrslitum á hryssunni Krónu frá Hólum. Mette Mannseth varð í þriðja sæti með hest sinn Hnokka frá Þúfum.

Í fjórða sæti varð Þórarinn Eymundsson með Takt frá Varmalæk og í því fimmta urðu Hanna Rún og Nótt frá Sörlatungu.

„Þessi fyrsta keppni í gæðingafimi í KS-Deildinni tókst mjög vel og með réttri þróun á þessari keppni er hægt að gera hana enn áhugaverðari. Aðstandendur deildarinnar eru mjög ánægðir með kvöldið og vilja koma þökkum til dómara og knapa fyrir góða frammistöðu í kvöld,“ segir loks á síðunni.

Fleiri fréttir