Gjaldfrjálsar tannlækningar barna

Samningur Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands um tannlækningar barna tók gildi 15. maí 2013 og gildir til 30. apríl 2019. Tannlækningar barna eru greiddar að fullu af SÍ utan 2.500 kr. árlegs komugjalds. Forsenda greiðsluþátttöku SÍ er skráning heimilistannlæknis í Réttindagátt - mínar síður á www.sjukra.is eða hjá tannlækni. Í upphafi tók samningurinn til 15, 16 og 17 ára barna og þann 1. september sl. til 3ja, 12, 13 og 14 ára barna.

Nauðsynlegt er að skrá heimilistannlækni en hans hlutverk er m.a. að boða börn í reglulegt eftirlit og sjá um forvarnir og nauðsynlegar tannlækningar þeirra. Samningurinn tekur einnig til barna í bráðavanda sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður þótt þau falli ekki enn undir ofangreind aldursmörk. Í slíkum tilvikum skal tilvísun berast SÍ frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum og umsókn frá tannlækni.

Í eftirfarandi áföngum munu öll börn falla undir samninginn:

Tannlækningar barna eru gjaldfrjálsar skv. ofangreindri
áfangaskiptingu utan 2.500 kr. árlegs komugjalds. Tafla: sjukra.is.

Fleiri fréttir