Gjörsamlega óboðlegt ástand

Hvers vegna hefur ráðherra ekki staðfest endurskoðað aðalskipulag Blönduóssbæjar, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Húnavatnshrepps?, spyr Einar K. Guðfinnsson alþingismaður Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra í fyrirspurn sem hann hefur lagt fram á Alþingi. Ástæðuna segir Einar  vera þá að óþolandi tafir hafa orðið á því að umhverfisráðherra skrifi undir tillögu að nýju skipulagi, ofangreindra sveitarfélaga.

 

Einar segir að vinna við aðalskipulagið hafi verið faglega unnin, ljóst sé að skipulagsmálin eru á stjórnsýslulegu forræði sveitarfélaganna, en hins vegar þurfi undirskrift ráðherra svo að skipulagið sé staðfest.

-Það er ljóst mál að tafirnar sem hafa orðið stafa af deilunum sem hafa verið um vegastæði á þjóðvegi 1. í þessum sveitarfélögum. Fyrir liggur skýr afstaða sveitarfélaganna, þau vilja ekki gera þessar breytingar á legu vegarins, en svo virðist sem stofnanir ríkisins séu á öðru máli og þar stendur hnífurinn í kúnni.

Einar segir þetta að þetta gjörsamlega óboðlegt ástand, eins og allir hljóti að sjá en með fyrirspurninni vill hann freista þess að þrýsta á um að þetta mál verði afgreitt hið snarasta í samræmi við vilja heimamanna og sveitarstjórnanna.

 

Fleiri fréttir