Glaðheimar - sumarhús á Blönduósi - njóta vinsælda
Lárus Jónsson eigandi Glaðheima- Sumarhúsa á Blönduósi- er bjartsýnn á sumarið, enda fjölgi ferðafólki hér á landi ört. Hann segir bókanir lofa góðu fyrir sumarið, enda Blönduós á margan hátt miðsvæðis. Lárus segir að erlendum ferðamönnum fjölgi ár frá ári.
Þetta kemur fram í viðtali sem Karl Eskil Pálsson tók við Lárus á sjónvarpsstöðinni N4. Viðtalið má sjá HÉR: