Glæsileg bók um Vatnsdalsá í Austur Húnavatnssýslu
Laxasetur Íslands á Blönduósi hefur nú tekið í sölu hina glæsilegu og litríku bók VATNSDALSÁ – Sagan og veiðimennirnir. Í þessari fallegu og metnaðarfullu bók er ferðast í ljósmyndum upp með Vatnsdalsá, frá söndunum við hafið og Húnavatn, um ræktað land og frjósamt, frá ósi upp á heiðar, þar sem áin fellur í tignarlegum fossum niður í dalinn. Bók sem veiðimenn og náttúruunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
Tilvalin gjafavara sem fæst bæði á ensku og íslensku. Áhugasamir geta haft samband við Laxasetrið í tölvupóstfanginu laxasetur@laxasetur.is eða komið við og flett bókinni, en Laxasetrið er staðsett við þjóðveg 1, rétt ofan við N1 á Blönduósi.
Í Laxasetri Íslands taka laxfiskar í stórum búrum á móti gestum. Einnig er þar að finna fjölbreytt fræðsluefni um allt sem viðkemur laxveiðum, sögu laxveiða, líffræði og þjóðfræði er miðlað á fjölbreyttan hátt.
Nánari upplýsingar veitir
Ágúst Pétursson
laxasetur@laxasetur.is
Sími: 452-2900
/fréttatilkynning
