Glæsilegur árangur á Íslandsmóti í hestaíþróttum

Íslandsmótið í hestaíþróttum 2015 fór fram dagana 8. – 12. júlí á félagssvæði hestamannafélagsins Spretts í Kópavogi og Garðabæ. Allt fór vel fram og mótið heppnaðist gífurlega vel. Hestamannafélögin á Norðurlandi vestra áttu knapa í toppsætum í nánast öllum flokkum á mótinu, og þar á meðal nokkra Íslandsmeistara.

Sem dæmi má nefna Ásdísi Ósk Elvarsdóttur sem keppti fyrir hestamannafélagið Stíganda varð íslandsmeistari í fimi unglinga og í fimmgangi F1. Einnig varð hún í 2. sæti í flokknum tölt t2 í unglingaflokki. Glæsilegur árangur hjá henni.
Í unglingaflokki var samanlagður sigurvegari Guðmar Freyr Magnússon fyrir Léttfeta, en hann varð í fjórða sæti í fjórgangi V1 í B – úrslitum og íslandsmeistari í 100 m skeiði.
Eyrún Ýr Pálsdóttir varð íslandsmeistari í fimmgangi F1 í meistaraflokki.
Systir hennar, Þórdís Inga Pálsdóttir Stíganda, varð í 2. sæti í Fjórgangi V1 í unglingaflokki og í sama sæti í flokknum tölt t1.
Eva Dögg Pálsdóttir frá Þyt átti frábært mót og varð íslandsmeistari í flokknum tölt t2 í unglingaflokki.
Þetta er þó einungis brot af þeim glæsilega árangi sem knapar frá Norðurlandi vestra náðu á Íslandsmótinu, en úrslit í heild sinni má sjá hér.

Fyrir neðan má sjá lista með knöpum frá Norðurlandi vestra og árgangur þeirra á mótinu, hann er þó ekki tæmandi.

 Eva Dögg Pálsdóttir í 1. sæti í tölt t2 í a úrslitum unglingaflokk og Ásdís Ósk Elvarsdóttir frá Stíganda í 2. sæti.  

Þórgunnur Þórarinsdóttir varð í 6. sæti í B- úrslitum í barnaflokki í fjórgangi V2, Léttfeti.

Þórdís Inga Pálsdóttir í 2. sæti í A úrslitum unglingaflokki í fjórgangi V1, Stígandi.

Eva Dögg Pálsdóttir varð í 2-3 sæti í B- úrslitum unglingaflokk í fjórgangi V1
og Guðmar Freyr Magnússon, Léttfeta, í því fjórða.

Finnur Ingi Sölvason frá Glæsi í 2-3 sæti í A- úrslitum í ungmennaflokk  og Finnbogi Bjarnason í 8 sæti frá Léttfeta.

Ragnheiður Petra Óladóttir frá Léttfeta í 2. sæti í fjórgangi V1 í B-úrslitum í ungmennaflokki.

Ísólfur Líndal Þórisson í 6 sæti í fjórgangi V1 í A- úrslitum í meistaraflokki frá Þyt.

Líney María Hjálmarsdóttir í 5. sæti í fjórgangi V1 í b úrslitum í meistaraflokk frá Stíganda

Ásdís Ósk Elvarsdóttir í 1. sæti í A-úrslitum í fimmgangi F1, Stígandi.

Þórarinn Eymundsson í 3 sæti í fimmgangi F1 í A-úrslitum meistaraflokki, Léttfeti.

Mette Mannseth í 4. sæti í fimmgangi F1 í B-úrslitum í meistaraflokki, Léttfeti.

Þórdís Inga Pálsdóttir í 2. sæti í tölt t1 í A-úrslitum unglingaflokki, frá Stíganda, og Guðmar Freyr Magnússon í 6. sæti, Léttfeti.

Finnbogi Bjarnason í 3 sæti í tölt t1 í A-úrslitum ungmennaflokki, Léttfeti.

Finnur Ingi Sölvason í 4. sæti í tölt t1 í B-úrslitum í ungmennaflokki, Glæsir.

Bjarni Jónasson í 2 sæti í B-úrslitum í meistaraflokki í tölt t1.

Finnbogi Bjarnason í 4-5 sæti í tölt t2  í A-úrslitum ungmennaflokki, Léttfeti.

Ísólfur Líndal Þórisson í 3 sæti í tölt t2 í A-úrslit meistaraflokk og Metta Mannseth í 4 sæti, Léttfeti.

Elvar Einarsson í öðru sæti í skeið 150 m, Stígandi.
Ísólfur Líndal Þórisson 10 sæti í skeið 150 m, Þytur.
Finnur Ingi Sölvason í 13 sæti í skeið 150 m, Glæsir.

Elvar Einarsson í 11 sæti í 250 m skeiði og Líney María Hjálmarsdóttir í 14 sæti, Stígandi.

Fleiri fréttir