Gleðilegt sumar

Þá er sumarið löglega gengið í garð og vetur kveður með norðaustan 5-13 m/s og él á Norðurlandi vestra, en seint á morgun lægir og dregur úr éljum ef spá Veðurstofunnar gengur eftir. Hiti kringum frostmark. Gömul þjóðtrú segir að ef sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar og skulum við trúa því.

Sumardagurinn fyrsti sem einnig er kallaður Yngismeyjardagur, er fyrsti dagur Hörpu, sem er fyrstur af sex sumarmánuðum í gamla norræna tímatalinu. Sumardaginn fyrsta ber alltaf upp á fimmtudag á tímabilinu frá 19.-25. apríl þ.e. fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl. Sumardagurinn fyrsti var lengi messudagur eða til 1744, segir á Wikipedia.

Feykir óskar landsmönnum öllum gleðilegs sumars með þakklæti fyrir samfylgdina í vetur.

Fleiri fréttir