Gleðilegt sumar!

Feykir óskar landsmönnum gleðilegs sumars. Vonandi er veðurblíðan sem dagurinn hefur í för með sér fyrirboði um það sem koma skal í sumar. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum.

Á morgun verður suðvestan og vestan 3-8 og rigning með köflum. Hiti 7 til 15 stig í dag, en 4 til 9 á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:

Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað N-til á landinu og hiti 2 til 6 stig. Bjart með köflum annars staðar og hiti 6 til 12 stig að deginum.

Á sunnudag:

Norðaustan 5-13 m/s og dálitlir skúrir eða él, en þurrt og bjart á S- og V-landi. Kólnandi veður.

Á mánudag:

Austan- og norðaustanátt, víða 5-10 m/s. Yfirleitt bjart veður um landið V-vert, en stöku él eða skúrir A-til. Hiti um og undir frostmarki, en að 6 stigum yfir daginn á S- og V-landi.

Á þriðjudag og miðvikudag:

Útlit fyrir austlæga átt. Bjartviðri N-lands, skýjað og þurrt að kalla með A-ströndinni, en stöku skúrir SV-til. Hiti breytist lítið.

Fleiri fréttir