Góð frammistaða Húnvetninga og Skagfirðinga í Meistara meistaranna

Í fyrrakvöld fór fram í Sprettshöllinni keppnin Meistari Meistaranna en þar er sigurvegurum í deildum vetrarins vítt og breitt um landið boðið þátttaka. Þeirra á meðal voru fulltrúar úr KS Deildinni og Húnvetnsku mótaröðinni sem náðu góðum árangri í þessari keppni.
Í keppninni eru eingöngu riðin úrslit og keppnisgreinarnar eru fjórgangur, fimmgangur, tölt T1 og tölt T2. Þykir þetta keppnisfyrirkomulag er mjög áhorfendavænt og líklegt má telja að þessi keppni eigi eftir að vaxa á komandi árum enda skemmtilegur endir á reiðhallakeppnum ársins.
Úrslit keppninnar urðu eftirfarandi:
Tölt:
Jakob Svavar Sigurðsson Gloría frá Skúfslæk Meistaradeild 8.39
Bjarni Jónasson Randalín frá Efri Rauðalæk KS deildin 7.89
Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Vesturlandsdeildin 7.72
Sólon Morthens Ólína frá Skeiðvöllum Uppsveitadeildin 7.50
Guðmundur Karl Tryggvason Rósalín frá Efri Rauðalæk KEA mótaröðin 7.05
Ámundi Sigurðsson Hrafn frá Smáratúni Gluggar og Gler deildin 7.0
Elvar Logi Friðriksson Byr frá Grafarkoti Húnverska liðakeppnin 6.83
Iðunn Svansdóttir Fjöður frá Ólafsvík KB mótaröðin 6.53
Fimmgangur:
Ísólfur Líndal Sólbjartur frá Flekkudal Meistaradeild 7.30
Þórarinn Eymundsson Narri frá Vestri Leirárgörðum KS deildin 7.17
Matthías Leó Matthíasson Oddaverji frá Leirubakka Uppsveitadeildin 7.02
Hallfríður Óladóttir Kolgerður frá Vestri Leirárgörðum Húnverska liðakeppnin 6.57
Katrín Sigurðardóttir Þytur frá Neðra-Seli Gluggar og Gler deildin 6.12
Haukur Bjarnason Gígur frá Skáney KB mótaröðin 5.88
Jón Páll Tryggvason Glóð frá Hólakoti KEA mótaröðin 5.57
Slaktaumatölt:
Fanney Dögg Indriðadóttir Brúney frá Grafarkoti Húnverska liðakeppnin 7.80
Gústaf Ásgeir Hinriksson Skorri frá Skriðulandi KS Deildin 7.63
Hinrik Bragason Pistill frá Litlu Brekku Meistaradeild 7.20
Jóhann Ólafsson Gnýr frá Árgerði Gluggar og gler 6.58
Baldvin Ari Guðlaugsson Lipurtá frá Hóli II KEA mótaröðin 6.20
Fjórgangur:
Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal KB mótaröðin 7.50
Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Meistaradeild 7.43
Artemisa Bertus Korgur frá Ingólfshvoli KS deildin 7.20
Þórarinn Ragnarsson Hringur frá Gunnarsstöðum Uppsveitadeildin 7.17
Berglind Ragnarsdóttir Frakkur frá Laugavöllum Vesturlandsdeildin 6.87
Fanndís Viðarsdóttir Stirnir frá Skriðu KEA mótaröðin 6.80
Jessie Huijbers Hátíð frá Kommu Húnverska liðakeppnin 6.70
Birta Ólafsdóttir Hemra frá Flagveltu Gluggar og Gler deildin 6.43