Góð heimsendingarþjónusta til bænda
Hjá Samkaup - Úrval á Blönduósi er heimsendingarþjónusta þar sem matvara er send með flutningaþjónustu Póstsins heim á sveitabæi 5 sinnum í viku. Það eina sem bændur þurfa að gera er að panta vöruna hjá versluninni daginn áður. Pósturinn keyrir síðan vöruna heim á þá bæi er nýta sér þjónustuna.
Það eina sem þarf að gera er að hringja í verslunina milli klukkan 10.00 og 16:00 og starfsfólk verslunarinnar pakkar vörunni og geymir þar til Pósturinn sækir vörurnar og keyrir hana beint heim. Sendingakostnaðurinn er greiddur með vörum hjá Samkaup en hann er 1.255 krónur fyrir vörur allt upp í 30 kg.