Góðar viðtökur í Metabolic

Hrefna Aradóttir, ÍAK einkaþjálfari og Erla Jakobsdóttir, íþróttafræðingur hafa þessa vikuna boðið Blönduósingum uppá  fría prufutíma á Metabolic námskeið sem hefur slegið í gegn um allt land. Þær eru ánægðar með þátttökuna en yfir 20 manns mættu í fyrsta kynningartímann og 13 manns mættu í morguntímann á þriðjudag en hann hófst klukkan 6:15 um morguninn.

Helgi Jónas Guðfinnsson, kennari við ÍAK einkaþjálfaranámið hjá Keili, körfubolta- og styrktarþjálfari hannaði námskeiðið og hafði það að leiðarljósi að námskeiðið ætti að vera árangursríkt, skemmtilegt, markvisst og öruggt.

„Eins og segir á Metabolic.is þá eru þetta hópþrektímar fyrir alla þá sem vilja minnka fitu og auka vöðvamassa, styrk, kraft, hraða og þol. Þátttakendur stjórna álaginu sjálfir og hentar Metabolic því bæði byrjendum og þeim sem eru í topp formi. Markmið Metabolic er að auka lífsgæði og gera hreyfingu að tilhlökkunarefni, segir Hrefna.

Metabolic námskeiðið hefst 27. ágúst, í boði verða 5 tímar í viku; mánudaga og þriðjudaga kl: 19.00, miðvikudaga kl:06:15, fimmtudaga kl:18:00 og föstudaga  kl:06:15. Kennt verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.

Fleiri fréttir