Gói og Baunagrasið koma norður

Sunnudaginn 7. apríl nk. verður barnaleikritið um Góa og Baunagrasið sýnt í menningarhúsinu Hofi kl. 13:00. Ævintýrið um Baunagrasið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í febrúar 2012 og hefur sýningin notið mikilla vinsælda meðal ungu kynslóðarinnar og ekki síst meðal þeirra fullorðnu sem kunna vel að meta hnyttinn húmor og spuna þeirra félaga Góa (Guðjón Davíð Karlsson) og Þröst Leó Gunnarsson.

Gagnrýnendur hafa lofað sýninguna í hástert og var sýningin tilnefnd til Grímunnar árið 2012 sem besta barnaleikritið, eitt þriggja verka.

Gói er sendur af móður sinni á markaðinn til að selja Skjöldu gömlu sem er eina mjólkurkýrin þeirra. Hann á langan veg fyrir höndum og áður en á leiðarenda er komið tekur ferðalagið óvænta stefnu þar sem þrjár töfrabaunir koma við sögu. Upp spinnst spennandi ævintýri með skemmtilegri tónlist, söng, dans og leikhúsbrellum. Risinn, hænan sem verpir gulleggjum, sjálfspilandi harpan og allir þorpsbúar mæta til leiks í Hamraborg í menningarhúsinu Hofi.

Það er því óhætt að segja að hér sé á ferðinni vandað skemmtiefni fyrir börn á öllum aldri þar sem efniviðurinn er fenginn úr sígildum og spennandi ævintýrum.

Miðasala er í síma 450-1000 og á menningarhus.is

Baunagrasið er á facebook: Sjá HÉR

Fleiri fréttir