Gói og eldfærin sýnd í Hofi

Í fréttatilkynningu frá Baunagrasinu segir að loksins sé barnaleikritið um Eldfærin væntanlegt á fjalirnar hér fyrir norðan. Sýningar verða í Hofi, Akureyri þann 9. september og 16. september næstkomandi.

Gói og Þröstur Leó opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna.

Dátinn er á leið heim úr stríði og upp spinnst spennandi ævintýri þar sem nornin, prinsessan og allir þorpsbúar birtast ljóslifandi að ógleymdum hundunum þremur með ógnarstóru augun. Ævintýrið um Eldfærin var frumsýnt í Borgarleikhúsinu vorið 2011 og hlaut frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda enda þykir staðfærsla Góa og Þrastar á hinni sígildu sögu um Eldfærin eftir H. C. Andersen einstaklega vel lukkuð, lífleg og með skemmtilegri tónlist. Gói leikur dátann og Þröstur Leó fer á kostum í hlutverki nornarinnar og annarra aukahlutverka.

Gói og Eldfærin hlaut tvær tilnefningar til Grímunnar árið 2011 sem barnasýning ársins og áhorfendasýning ársins. Enginn, sem kynnst hefur ógleymanlegum ævintýrum, ætti að láta þessa sannkölluðu töfrastund fram hjá sér fara.  Miðasala í síma 450-1000 og á  menningarhus.is

Fleiri fréttir