Golf á Siglufirði
Golfklúbbur Siglufjarðar verður með tvö flott opin mót um helgina. Á laugardeginum verður Opið kvennamót Siglósports og á sunnudeginum verður Opna Olís mótið. Leikin verður punktakeppni með forgjöf þ.e. bæði mótin eru fyrir byrjendur og lengra komna. Teiggjafir verða í báðum mótunum.
Verðlaun í Opna kvennamóti Siglósports:
- 1. Verðlaun: 15.000 kr gjafabréf frá Siglósport
- 2. Verðlaun: 10.000 kr gjafabréf frá Siglósport
- 3. Verðlaun: 5.000 kr gjafabréf frá Siglósport
Nándarverðlaun á par 3 brautum (1., 8. og 9.) í boði Siglufjarðarapóteks.
Nánari upplýsingar og skráning: http://gks.fjallabyggd.is/is/news/opid-kvennamot-siglosports-laugardaginn-7.-juli/
Verðlaun í Opna Olís mótinu:
Karlaflokkur:
- 1. Verðlaun: 15.000 kr. inneign hjá Olís
- 2. Verðlaun: 10.000 kr. inneign hjá Olís
- 3. Verðlaun: 7.000 kr. inneign hjá Olís
Kvennaflokkur:
- 1. Verðlaun: 15.000 kr. inneign hjá Olís
- 2. Verðlaun: 10.000 kr. inneign hjá Olís
- 3. Verðlaun: 7.000 kr. inneign hjá Olís
Nándarverðlaun á par 3 brautum (1. , 8. og 9.): 5.000 kr. inneign hjá Olís.
Dregið úr skorkortum í mótslok - 3 vinningar.
Nánari upplýsingar og skráning: http://gks.fjallabyggd.is/is/news/opna-olis-motid-a-sunnudaginn-8.-juli/