Golfblaðamaður frá Daily Mirror á Skagaströnd
Hvernig getur fámennur klúbbur byggt upp góðan golfvöll? Þessari spurningu og fleirum velti breski golfblaðamaðurinn Nic Brook fyrir sér og til að fá svör sótti hann Skagaströnd heim og kynnti sér golfvöllinn.
Blaðamaður var hér á ferð með Ásbirni Björgvinssyni framkvæmdastjórastjóra Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi. Þeir hittu nokkra forvígismenn Golfklúbbs Skagastrandar og spurði Nic Brook fjölda spurninga um golfvöllinn og Skagaströnd.
Nic Brook tók þátt í Artic Open golfmótinu og Akureyri og var hann mjög ánægður með þá upplifun.
Blaðamaðurinn skrifar fyrir breska stórblaðið Daily Mirror og má búast við umfjöllun hans á síðum blaðsins á næstunni.
Lesendur utan Skagastrandar taka væntanlega eftir bláum himni og fögru útsýni. Þannig er þetta alltaf á Skagaströnd ..
heimild; Skagaströnd.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.