Golfið leikið í Silungapolli í Laxasetrinu

Golfarar á Blönduósi hafa ekki látið veturinn stoppað sig í að iðka golfíþróttina því félagar í Golfklúbbnum Ós brugðu á það ráð að opna inniaðstöðu til golfiðkunar á nýju ári. „Allt þetta hófst með höfðinglegri gjöf frá Tengli en þeir færðu golfklúbbnum að gjöf tölvu sem gerir okkur fært að ferðast um allan heim á golfvöllum sem meistararnir spila. Kærar þakkir til Tengils fyrir framlagið,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum á Húna.is.

Laxasetur Íslands hýsir golfherminn og hefur aðstaðan fengið nafnið Silungapollur og hafa nokkur laugardagsmót verið haldin en einnig geta félagar spilað í miðri viku. „Ef það eru bílar fyrir utan Laxasetrið á laugardegi er golfmót í gangi og öllum hjartanlega velkomið að líta inn.“

Á Húna.is er hægt að sjá fleiri myndir frá aðstöðunni á Silungapolli.

Fleiri fréttir