Golfkortið 2011 er komið á sölustaði
Golfkortið veitir aðgang að 23 golfvöllum víðsvegar um landið en handhafar þess geta spilað í sex daga á hverjum velli, þegar völlurinn er opinn fyrir almenning. Golfkortið er ódýr, einfaldur og hagstæður kostur fyrir alla golfáhugamenn en hægt er að kaupa einstaklings- eða fjölskyldukort.
Kortið er tilvalið fyrir þá sem langar að ferðast um landið í fríinu og prófa nýja skemmtilega velli en leitast var eftir því að fá sem fjölbreyttast úrval af völlum, á sem dreifðustu svæði.
N1 er helsti dreifingar aðili kortsins.
Hægt er að skoða allar nánari upplýsingar á síðunni www.golfkortið.is