Göngu á íslensk bæjarfjöll að ljúka
Þorsteinn Jakobsson, gjarnan nefndur Fjalla-Steini, er þessa dagana að ljúka göngu sinni á Íslensk bæjarfjöll. Í dag og næstu daga mun hann ljúka við þau fjöll sem eftir voru á Norðurlandi. Reiknar hann með að leggja á Vatnsdalsfjall, frá Hvammstanga, kl 13:00 í dag, en tímasetningar geta þó breyst með stuttum fyrirvara vegna veðurs. Símanúmer Þorsteins er 892-5110 og gefur hann nánari upplýsingar um brottfarartíma og stað.
Á morgun verður svo gengið á Ennishnjúk við Hofsós og Kaldbak við Grenivík á laugardaginn. Allir eru boðnir velkomnir í gönguna en með Þorsteini í för er Bragi Unnsteinsson. Myndir af Bæjarfjöllunum og umfjöllun um þau verður í bókinni Íslensk bæjarfjöll, sem kemur út til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Þorsteinn og félagar minna um leið á söfnunarbauka og óska eftir aðstoð við að dreifa þeim sem víðast um landið.
Í fréttatilkynningu frá Þorsteini og félögum segir að gönguhópur þeirra, Fjallagarpar og gyðjur, muni um ókomna tíð minna á og standa fyrir söfnunum fyrir góð málefni.