Gönguleiðir bættar og bekkjum fjölgað
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
31.03.2015
kl. 08.52
Bæjarmálafélagið á Skagaströnd hefur sent sveitarstjórn Skagastrandar bréf þar sem kynntur er áhugi, sem fram hafi komið á fundum Bæjarmálafélagsins, um að gönguleiðir verði bættar og komið verði fyrir bekkjum meðfram þeim. Bréfið var lagt til kynningar á fundi sveitarstjórnar þann 27. mars sl.
Með bréfinu var tillaga og greinargerð um markvisst skipulag útivistarsvæða í sveitarfélaginu en sérstaklega er hvatt til að bekkjum verði fjölgað við fjölförnustu gönguleiðir. Erindi Bæjarmálafélagsins var rætt á fundinum og var sveitarstjóra falið að vinna áfram með málið og koma upp tveimur bekkjum við gönguleiðir.