Google Maps á Norðurlandi vestra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
20.11.2013
kl. 09.17
Vefsíðan Google Maps hefur notið mikilla vinsælda hér á landi undanfarnar vikur enda komu myndir frá Íslandi inn á hana í byrjun október. Ekki var hægt að skoða alla staði á landinu þá en hver á fætur öðrum eru að koma inn og er núna hægt að skoða þéttbýlisstaðina á Norðurlandi vestra.
Myndavélabílar Google fóru um landið í sumar og tóku 360° ljósmyndir en þá er hægt að ferðast um svæðin rafrænt. Til að virkja Street View-haminn á Google Maps þarf að slá inn nafn staðarins sem stendur til að skoða, og draga síðan gula karlinn úr vinstra horninu á kortið.
HÉR er hægt að komast af stað í ferðalag á Netinu með því að setja inn eitthvaert staðarheiti eða götunafn.